Lamba(G)ULL - Snót - 50g

Verð: ISK 2.100

3 in stock

Pakkinn inniheldur:

Ull er gull - Í haust þegar kindurnar voru rúnar sendum við hluta af lambsullinni okkar til Uppspuna spunaverksmiðju og er hún nú komin til baka í dýrindis 2 þráða garni sem er álíka í þykkt og léttlopi en mun mýkra og sterkara.  Garnið nefnum við Brekku(g)ULL, til að byrja með verðum við aðeins með sauðalitina en komum svo til með að gera tilraunir með litun líka fljótlega – fæst í 50 g hespum eða dokkum (hægt að velja) sem er ca 100m – mælum með að nota prjóna nr 3,5-4,5

Þetta er ullin hennar Snótar sem nefnd er í höfuðuið á mömmu sinni Snót sem er ein af okkar fyrstu kindum sem við fengum þegar við hófum búskap með kindur 2015 - en Snót og litla Snót eru síðustu lömbin hennar.  Þær er systur Vanillu og allar hvítar og kollóttar spakar og góðar kindur.

 

Örlítill litamunur er á ull þeirra systra en það er aðeins gráleitari blær á Litlu Snót.