Lamba(G)ULL -Gránusvartbotna 50 g

Verð: ISK 2.100

3 in stock

Pakkinn inniheldur:

Ull er gull - Í haust þegar kindurnar voru rúnar sendum við hluta af lambsullinni okkar til Uppspuna spunaverksmiðju og er hún nú komin til baka í dýrindis 2 þráða garni sem er álíka í þykkt og léttlopi en mun mýkra og sterkara.  Garnið nefnum við Brekku(g)ULL, til að byrja með verðum við aðeins með sauðalitina en komum svo til með að gera tilraunir með litun líka fljótlega – fæst í 50 g hespum sem er ca 100m – mælum með að nota prjóna nr 3,5-4,5

Þetta er ullin hennar Gránusvartbotnu sem er  grágolsótt með svartan botnsem gefur þennan fína gráa lit.

Þær systur Gilitrutt og Gránusvartbotna eru dætur Gránu okkar sem var heimaalningur og mikið uppáhald, en þær misstu mömmu sína sem varð afvelta hér heima í túni um haustið, þær voru því báðar settar á og standa sína plikt með sóma.  Skemmtilega ólíkar systur þó báðar gráar séu.