Lamba(G)ULL - Arna

Verð: ( Veldu bragðtegund )

hreinsa
Magn:


Pakkinn inniheldur:

Ull er gull - Í haust þegar kindurnar voru rúnar sendum við hluta af lambsullinni okkar til Uppspuna spunaverksmiðju og er hún nú komin til baka í dýrindis 2 þráða garni sem er álíka í þykkt og léttlopi en mun mýkra og sterkara.  Garnið nefnum við Brekku(g)ULL, til að byrja með verðum við aðeins með sauðalitina en komum svo til með að gera tilraunir með litun líka fljótlega – fæst í 50 g hespum sem er ca 100m og 25g sem er ca 50m– mælum með að nota prjóna nr 3,5-4,5

Þetta er ullin hennar Örnu sem er arnhöfðótt - þ.e. að mestu svört, með hvíta blesu, makka og í hvítum sokkum - ullin er dökk steingrá með örlitlum mórauðum blæ og ofboðslega mjúk