Brekku(g)ULL - ORKA 50g

Verð: ISK 2.100

ISK 1.050

1 in stock

Pakkinn inniheldur:

Ull er gull - Í haust þegar kindurnar voru rúnar sendum við hluta af lambsullinni okkar til Uppspuna spunaverksmiðju og er hún nú komin til baka í dýrindis 3 þráða garni sem er örlítið  þykkara en  léttlopi en mun  sterkara.  Garnið nefnum við Brekku(g)ULL, til að byrja með verðum við aðeins með sauðalitina en komum svo til með að gera tilraunir með litun líka fljótlega – Golu ull 50 g hespum með ca 100m og 25g sem eru ca 50m

 

Þetta er ullin af henni ORKU sem er svört kind með mórauðu ívafi  hún fékk nafnið stt þar sem hún var óvenju sprækt lamb sem stökk um allt og lét fátt stoppa sig =O)  falleg kind.

 

Mælt með prjónastærð 3,5-4,5 mm