Lamba(G)ULL -Monsa

Verð: ( Veldu bragðtegund )

Pakkinn inniheldur:

Ull er gull - Í haust þegar kindurnar voru rúnar sendum við hluta af lambsullinni okkar til Uppspuna spunaverksmiðju og er hún nú komin til baka í dýrindis 2 þráða garni sem er álíka í þykkt og léttlopi en mun mýkra og sterkara.  Garnið nefnum við Brekku(g)ULL, til að byrja með verðum við aðeins með sauðalitina en komum svo til með að gera tilraunir með litun líka fljótlega – fæst í 50 g hespum sem er ca 100m - og 25 g sem er ca 50 m– mælum með að nota prjóna nr 3,5-4,5

Þetta er ullin hennar Monsu sem er  ljósgrágolsótt sem gefur þennan fína ljósa gráa lit.

Monsa var heimalingur þar sem hún er fjórlembingur og það eru víst bara 2 spenar á hverri kind, hún og er ein mesta gælukindin á bænum (í harðri samkeppni við Bambínu), hún bjargaði lífi sínu með því nánast að stökkva í fangið á bóndanum og sitja þar sem fastast og kjassa hann þegar hún var komin í sláturstíuna.  Hún er skemmtileg kind sem veit alveg hvar eitthvað gott er að finna.