Lamba(G)ULL - Lilja
Verð: ( Veldu bragðtegund )
Pakkinn inniheldur:
Ull er gull - Í haust þegar kindurnar voru rúnar sendum við hluta af lambsullinni okkar til Uppspuna spunaverksmiðju og er hún nú komin til baka í dýrindis 2 þráða garni sem er álíka í þykkt og léttlopi en mun mýkra og sterkara. Garnið nefnum við Brekku(g)ULL, til að byrja með verðum við aðeins með sauðalitina en komum svo til með að gera tilraunir með litun líka fljótlega – fæst í 50 g hespum sem er ca 100m og 25g sem er ca 50m– mælum með að nota prjóna nr 3,5-4,5
Þetta er ullin hennar Lilju en þær systur Sól og Lilja eru dætur Sóllilju sem við misstum úr bráðajúgurbólgu þegar þær voru ca 6 vikna, en hún var annað lambið sem fæddist á bænum eftir að við hófum húskap á Lindarbrekku, undan Helgu sem er ættmóðir flestra okkar kinda, Allt saman mjög góðar og flottar ær. Þær Sól og Lilja urðu þvi heimaalningar hjá okkur og eru nú orðnar ráðsettar og fallegar kindur.
Lilja er alveg svört