Brekku(g)ULL - Súkkulaði ull - 100g

Verð: ISK 3.990

2 in stock

Magn:


Pakkinn inniheldur:

Ull er gull - Í haust þegar kindurnar voru rúnar sendum við hluta af lambsullinni okkar til Uppspuna spunaverksmiðju og er hún nú komin til baka í dýrindis 3 þráða garni sem er örlítið  þykkara en  léttlopi en mun  sterkara.  Garnið nefnum við Brekku(g)ULL, til að byrja með verðum við aðeins með sauðalitina en komum svo til með að gera tilraunir með litun líka fljótlega – Súkkulaði ull 2021 fæst í 100 g hespum með ca 100m. af bandi. 

 

Mælt með prjónastærð 5-6,5 mm

 

Þetta er ullin af henni Súkkulaði sem var dökk mórauð, hún var heimalningur hér í sumarið 2020, spök frek og skemmtileg =O) Því miður misstum við Súkkulaði núna í sumar og er þetta því síðasta "Súkkulaði" ullin, en hér er einn mórauður hrútur sem fæddist agnarsmár og er of lítill enn til slátrunar, verður því líklega settur á sem smálamb nú í haust og þá rúinn í haust og væntanleg þá ullin hans Mola einhvern tíman í vetur/vor.