Lamba(g)ULL - Skvísu ull 50g
Verð: ISK 2.100
4 in stock
Pakkinn inniheldur:
Ull er gull - Í haust þegar kindurnar voru rúnar sendum við hluta af lambsullinni okkar til Uppspuna spunaverksmiðju og er hún nú komin til baka í dýrindis 2 þráða garni sem er álíka í þykkt og léttlopi en mun mýkra og sterkara. Garnið nefnum við Brekku(g)ULL, til að byrja með verðum við aðeins með sauðalitina en komum svo til með að gera tilraunir með litun líka fljótlega – fæst í 50 g hespum eða dokkum sem er ca 100m – mælum með að nota prjóna nr 3,5-4,5
Þetta er ullin af henni Skvísu sem sést hér á myndinni lengst til hægri - Hér er hún að koma af fjalli í fyrrahaust ásamt móður sinni henni Mínu og bróður. Ullin er hærusvört.